Tuesday, April 01, 2008
Þetta var að sjálfsögðu "blogdrive-er-algert-drasl-mál" fyrir eftirfarandi:
Klukkan er 12:40 og hálftími síðan ég vaknaði eftir eitt magnað frumsýningarpartý. Frumsýningin heppnaðist mjög vel, ekki gallalaust en vel engu að síður. Ég hef ekki meira um málið að segja þannig við skulum bara láta um myndirnar tala. Þ.e.a.s. um leið og ég hef sett þær inn á netið.
Í tilefni að þessu uppátæki í blogdrive kerfinu hef ég ákveðið að prófa að færa mig yfir á bloggar.is,
hér. Svo sjáum við til hvort ég held mig þar.
Og ef allt fer að óskum verða myndirnar úr partýinu sennilega inni á myspace þegarþetta er lesið.
Posted at 02:38 am by
EirikurOla
Permalink
Saturday, March 29, 2008
Kukkan er 12:40 og hálftÃmi sÃðan ég vaknaði eftir eitt magnað frumsýningarpartý.
Frumsýningin heppnaðist mjög vel, ekki gallalaust en vel engu að sÃður. Ég hef ekki meira um málið að segja þannig við skulum bara láta myndirnar um að tala. Þ.e.a.s. um leið og ég hef sett þær inn á netið.
Posted at 02:31 am by
EirikurOla
Permalink
Friday, March 28, 2008
Klukkan er 16:06 og fjórir tímar í frumsýningu!
Og vottar fyrir fiðringi í maganum. Ég kvíði því þó ekki að koma fram, þvert á móti! Ég er hinsvegar sannfærður um að ég eigi eftir að gleyma hárkollunni minni eða því einfaldlega að koma inn á svið! Nú bíðum við bara og vonum.....
Posted at 04:06 pm by
EirikurOla
Permalink
Tuesday, March 18, 2008
Oh, Motor where art thou?
In mainstream sellout land of childrape and death, that´s where! Í stuttu máli sagt fór ég í um daginn í Mótor og hugsaði mér gott til glóðarinnar að núna skyldi ég aldeilis endurnýja fatabyrgðir mínar en hvað haldiði að hafi tekið á móti mér annað en rekkar af nákvæmlega eins gallabuxum og hvítum hettupeysum með marglitum stjörnum. Motor, eina búðin á Íslandi sem hefur stundað það að selja underground og goth fatnað af einhverju viti, ljósið í þessari dimmu veröld hvítra gallabuxna og bleikra skyrta hefur brugðist mér og öllum öðrum gotum landsins! Ekki það að þeir hafi verið neitt ofboðslega duglegir í þessu hingað til en það afsakar ekki þá staðreynd að ég þurfti að vera í bláum gallabuxum, já, bláum gallabuxum, alla dvöl mína í Reykjavík. Jæja, ég gat þó leitað griða í Hókus Pókus á Laugaveginum og keypti ég mér þar svartar augnlinsur.
Ég var einnig svo óheppinn á meðan Reykjavíkurdvöl minni stóð að 101 Gallerí er bara opið á fimmtu-, föstu-, og laugardögum þannig ég komst ekki á sýninguna hans Nonna sem ég ætlaði að gera í sambandi við verkefnið sem ég er að gera um hann fyrir SJL203. En en hvert svart ský hefur litla silfurklæðingu því að ég var svo heppinn að hitta á hann sjálfan þegar ég gerði mér ferð í Nonnabúð og hann lét mig fá meilið sitt og samþykkti að svara nokkrum spurningum við tækifæri.
Á mánudagskvöldið fór ég svo með mömmu og Evu að sjá Brúðgumann sem er í alla staði sórskemmtileg og er langt síðan ég hef hlegið svo innilega að mynd, hvað þá íslenskri mynd (já, gat verið, handritið er rússneskt!).
Annað merkilegt sem gerðist:
-Lalli Johns kallaði til mín úr bílnum sínum, skælbrosandi og greinilega ekki laus við
aukaefni í líkamanum.
-Ég sá Mugison tvisvar á sama degi. Fyrst á Laugaveginum og svo á flugvellinum á
leiðinni heim.
-Ég lét loksins verða af því að horfa á Donnie Darko og varð ekki fyrir vonbrigðum.
-Mamma hitti Geirjón frænda lögreglustjóra.
-Ég leitað heimilda á Borgarbókasafninu.
-Já, og Sóla "frænka" gekk formlega til liðs við þjóðkirkjuna.
En nú er ég semsagt kominn aftur heim í mína ástkæru Egilsstaði og er búinn að slá persónulegt met í blogglend. (Samt öfunda ég Hrefnu ennþá af því að vera á skíðum í Noregi.)
Posted at 10:39 pm by
EirikurOla
Permalink
Saturday, March 15, 2008
Já! Fallega, dýrðlega, yndislega páskafrí! Ég dái þig, sveipaðu mig örmum þínum og elskaðu mig!
Ahem.... allavega, ég er alveg viss um það að þeir sem hafa einhvern tíman hlaupið maraþon vita hvernig þessi tilfinning er. Léttirinn sem fylgir því að vera kominn í mark og þurfa ekki að hlaupa meira! Að geta sest niður og andað og ekki einu sinni hugsa um að hreyfa sig. Í mínu tilfelli hinsvegar á ég enn eftir að hlaupa alla leiðina aftur til að komast að bílnum mínum fyrir sólsetur. Eða á mannamáli þarf ég að skrifa rannsóknarritgerð um Ólaf "pá" Höskuldsson og búa til heimildarmynd um Jón Sæmund Auðarson í páskafríinu, ásamt því að klára að skrifa lag fyrir 3. stig í tónfræði. Yay me! En ég get þó glaðst yfir því að vera í Reykjavík, að sitja á Kaffi Hljómalind og drekka engiferöl (og taka þátt í "experimental noise djammi"). Og svo get ég farið og nördast í Nexus og labbað Laugarveginn og notið lífsins til tilbreytingar. En ég sakna ykkar allra, taki þeir til sín sem eiga.
Og svo er komið meira dót inn á Deviantart - ein mynd og lagatexti - og enn meira á leiðinni.
Posted at 08:40 pm by
EirikurOla
Permalink
Friday, March 07, 2008
Fuckshitcrapþaðersvomikiðaðgerahjámér!
Þannigtilaðsparatímaþáeréghætturaðnotabilstöngina.Þangaðtilseinna.-Eiríkur
Posted at 12:16 pm by
EirikurOla
Permalink
Monday, March 03, 2008
"Vi danser limbo uden snyd!"
Já, krakkar mínir, þetta fær maður fyrir að neyta áfengis: maður talar eintóma dönsku og týnir úlpunni sinni. Andskotinn hafið það! Jæja, ég reyndi þó allavega ekki við pólskan klæðskipting og drapst með hausinn á kvolfi í klósettinu eins og sumir! Og talandi um þá, þá hefur verið að sjást undarlega mikið af fullorðnum pólverjum (gætu þó hugsanlega hafa verið annars þjóðernis) á menntaskólaböllum. Er ég sá eini sem finnst það hálf truflað að sjá feita, sköllótta miðaldra menn reyna að dansa við 17 ára stelpur (og þá erum við ekki að tala um fallegan vals sem maður dansar við afa sinn/ömmu sína í fermingarveislu). Með fullri virðingu til pólsku þjóðarinnar, en þaðan kemur mikið af góðu merkisfólki (m.a. feður meloblacksins Behemoth!), þá er mér misboðið. En kannski eru þeir bara svona vitlausir í Pál Óskar. Atvikið sem ég talaði um áðan gerðist nefnilega á balli með honum á Neskaupstað sem og á Barkaballinu þar sem PÓ þeytti einnig skífum en á því síðarnefnda gerðu þeir þó engan skandal heldur litu bara mjög kjánalega út og fer ég ekki nánar út í það, en hey, lífið væri bara ekki eins skemmtilegt á örlítils menningarlegs misskilnings!
Posted at 10:37 am by
EirikurOla
Permalink
Friday, February 22, 2008
Jæja þá eru opnu dagarnir búnir í skólanum og hið ljóta andlit raunverulaikans blasir enn eina ferðina við mér og hæðist að mér skellihlægjandi, rétt utan seilingar fyrir mig að pota í augun og sparka í punginn á því. En nokkrir skemmtilegir/undarlegir/ahugaverðir hlutir sem gerðust meðan á opnu dögunum stóð:
- Ég horfði á Black Books og hló óstjórnlega.
- Ég sá gamlan banana á stigagangi heimavistarinnar sem var bókstaflega búinn að breytast í vökva.
- Ég tók þátt í því að taka á móti 4 skotum og 2 portúgölum (haha, gölum) sem komu til Íslands í sambandi við Comeniusar verkefnið (ekki spyrja). Á mánudeginum fórum við og kíktum á leikæfingu og þau fengu að vera með í upphitunarleikjum. Svo fórum við í sund og horfðum á The Butterfly Effect í vegaHúsinu. Langt síðan ég sá þá mynd en hún hættir bara ekki að vera góð (og vegaHúsið er líka orðið jättebra, komið þythokkí og allez). Svo á fimmtudaginn fórum við á snjósleða uppi á Fjarðarheiði og útlendingunum var kalt en Íslendingunum sennilega kaldar (við allavega vældum hærra og eyddum meiri tíma inni í bíl).
- Ég fékk að heyra pælingar Skota um Ísland og gerði heiðarlega tilraun til að kenna viðkomandi að segja "Einu sinni var Skoti..."
Og nú er fimmtudagskvöld, og ég á að fara í íþróttatíma klukkan 8 í fyrramálið. En
bíddu, öll von er ekki úti. 30 og tveggja klukkustunda leikæfing framundan. Ef
einhver vill ennþá heita á þetta sendið mér þá hringabrynju* og ég kem
til ykkar eftir helgi til að innheimta.
*Ca. 10% þjóðarinnar kæmu til með að fatta þetta.
Posted at 08:46 am by
EirikurOla
Permalink
Thursday, February 21, 2008
Ég held að ég geti dáið hamingjusamur...
Posted at 12:04 pm by
EirikurOla
Permalink
Friday, February 08, 2008
I´m just a sweet transvestite from Transexual Transylvania
Nei, ég er bara að grínast, ég hef ekki einu sinni komið þangað. Ég var hinsvegar að sjá The Rocky Horror Picture Show í fyrsta skipti um daginn. Hún var ekkert eins og ég hafði ímyndað mér hana en ég get ekki sagt að hún hafi valdið mér vonbrigðum enda er Tim Curry svo ógeðslega góður sem slepjulegi klæðskiptingurinn Dr. Frank-n-Furter að mig langar til að hoppa og hlæja eins og smástelpa í hvert skipti sem ég sé glottið á honum. Ég sá hr. Curry fyrst sem illa kardínálann í Disneymyndinni* The Three Musketeers og það fyrsta sem ég hugsaði þá var "það er eitthvað við þennan mann sem er mjög truflandi". Eða réttara sagt þetta hefði ég hugsað í dag. Þá var ég allt of upptekinn við að skíta í buxurnar af hræðslu til að vera að liggja í djúpum pælingum yfir því af hverju Curry er eins creepy og raun ber vitni.
Annars er kallinn bara byrjaður að læra yoga og þykir fram að þessu mikið til þess koma (það er alveg ýkt vírað!), en hvað veit ég? Ég er bara búinn að fara í einn tíma! Í þeim tíma var reyndar farið yfir óvenju mikið efni þar sem ég var sá eini sem mætti! Sumum hefði kannski þótt vandræðalegt að sitja einn við kertaljós með manni á sextugsaldri að slaka á og gera öndunaræfingar en mér fannst þetta bara mjög næs jógatími og hyggst halda því áfram.
*Þar sem það er svo ógeðslega mikið af þeim finnst mér að Disney mynd ætti að vera eitt afmarkað sérnafn.
Posted at 11:48 pm by
EirikurOla
Permalink